Skip to main content

Nýtt fréttabréf

Nýtt fréttabréf er komið inn.

Og minnum á þorrablótið.  

Þorrablót

Þorrablótið verður 25. janúar  Smile

Fúsi frá Flögu segir sögur + hljómsveitn Ballest spilar fyrir dansi + matur frá Höfðakaffi = samsetning sem getur ekki klikað. 

hkarl.jpg

 

 

Jólajkveðja

Skaftfellingafélagið óskar Skaftfellingum heima og að heiman gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum fyrir það liðna.
Stefnt að þorrablóti í upphafi þorra að venju.
jol.jpg
 

Aðventustund

Skaftfellingafélagið og Söngfélagið standa fyrir aðventustund 
sunnudaginn 8. desember 2013
kl. 15:00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.

Söngfélagið syngur nokkur jólalög, bornar verða fram kaffiveitingar og gengið í kringum jólatré.
Aðgangseyrir kr. 1200 fyrir fullorðna
x1036.gif

Fyrirlestur og myndakvöld

Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 20 mun Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur flytja fyrirlestur og myndasýningu um þær rannsóknir sem hann hefur gert í Skaftafellssýslum, sem spanna frá uppgreftri á Hólmi í Laxárdal í Nesjum 1996 til skoðunar fornra rústa á Síðuheiði. Sjá nánar um  rannsóknir hans á heimasíðunni: http://fornstofan.is/ 
Aðgangur er ókeypis, en seldar verða veitingar í hléi.
baer.jpg
 
 

Einleikur um sr. Jón Steingrímsson í Skaftfellingabúð, 7. nóvember, kl. 20

Jón Steingrímsson er kunnastur fyrir eldmessuna er hann flutti í miðjum Skaftáreldum, en hver var hann, hvaðan kom hann og hver urðu örlög hans? Hér er sögð saga frá 18. öld af góðum bónda, lækni og presti sem þarf að takast á við afleiðingar skelfilegustu náttúruhamfara Íslandssögunnar á tímum örbirgðar og undirokunar. 
„Árið 1783 þann 8. júní, sem var hvítasunnuhátíð, í heiðríku og spöku veðri um dagmálabil, kom upp fyrir norðan næstu byggðafjöll á Síðunni svart sandmistur og mokkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna”. 
Þannig segir séra Jón Steingrímsson frá upphafi Skaftárelda í eldriti sínu. Frá Jóni eru komnar nákvæmustu lýsingarnar af Skaftáreldum sem varðveittar eru. 
Leikverkið byggir að mestu á skrifum Jóns, en um leið vekur það spurningar um hliðstæður við hamfarir af völdum manna og náttúru sem yfir þjóðina hafa dunið á síðustu árum. 
Höfundur handrits og leikari er Pétur Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir, leikmynd gerði Rósa Sigrún Jónsdóttir, búninga Thelma Björnsdóttir og hljóðmynd er eftir Guðna Franzson.  
Aðgangur ókeypis.
jon_.jpg