Skip to main content

Aðalfundur

Aðalfundur Skaftfellingafélagsins verður haldinn
fimmtudagskvöldið 8. maí 2014, kl. 20, í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Venjuleg aðalfundarstörf.

Dagskrá (áætluð)

1)            Fundur settur
2)            Kosning starfsmanna fundarins
3)            Fundargerð síðasta aðalfundar
4)            Skýrsla stjórnar
5)            Reikningar félagsins
6)            Skýrsla og reikningar Kvikmyndasjóðs
7)            Skýrsla Söngfélags Skaftfellinga
8)            Skýrsla gönguhópsins Skálmar
9)            Lagabreytingar
10)          Húsnæðismál og framtíð félagsins
11)          Stjórnarkjör
12)          Önnur mál

Tónleikar og vorkaffi

Söngfélag Skaftfellinga heldur tónleika í Áskirkju sunnudaginn 4. maí 2014, kl. 14:00.
Flutt verða innlend og erlend sönglög og dægurlög.
Einnig kemur fram sextettinn Vinir Skúla.
Stjórnandi Friðrik Vignir Stefánsson
Vingir Þór Stefánsson – píanó
Matthías Stefánsson – fiðla
Jón Rafnsson – kontrabassi
Aðgangur kr. 2000
Tónleikagestum er boðið í vorkaffi Skaftfellingafélagsins í Skaftfellingabúð Laugavegi 178 að tónleiknum loknum.
sngf.augl.vortonl.2014.jpg
 

Tónleikar á Klaustri

Söngfélag Skaftfellinga heldur tónleika í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri fimmtudaginn 1. maí 2014, kl 16:00.  Einnig kemur frá sextettinn Vinir Skúla.
Stjórnandi Friðrik Vignir Stefánsson
Undirleikari Vignir Þór Stefánsson 
Aðgangur ókeypis og allir hjartalega velkomnir.
sngf.lokaaugl.2014.jpg

Skaftfellingar sigruðu átthagafélagskeppnina

Lið Skaftfelllingafélagsins fór með sigur af hólmi í Spurningakeppni átthagafélaganna sem efnt var til í Breiðfirðingabúð í vetur, annað árið í röð.  Liðið skipuðu þau Jóna Benný Kristjánsdóttir, ættuð úr Nesjum og Suðursveit, Salómon Jónsson frá Vík sem var um tíma búsettur á Höfn og Hornfirðingurinn Þórhallur Axelsson.   Í úrslitum kepptu þau við lið Húnvetningafélagsins sem var skipað Jóhanni Almari Einarssyni frá Tannstaðabakka, Hugrúnu R. Hólmgeirsdóttur ættaðri frá Bjarghúsum og Þorgrímsstöðum og Einari Loga Vignissyni frá Blönduósi. 
 Liðin voru jöfn 19 -19 eftir hina hefðbundnu keppni svo skellt var á bráðabana sem Skaftfellingar unnu. Þeir hömpuðu veglegum bikar og fengu auk þess hver og einn gistingu fyrir tvo með morgunmat á Hótel KEA, bækurnar Gröfin á fjallinu og Hljóðin í nóttinni frá Bókaútgáfunni Bjartur/Veröld og ostakörfur frá Osta-og smjörsölunni.  
Einnig hlutu þeir gistingu fyrir tvo með morgunmat í Hótel Skaftafelli frá Skaftfellingafélaginu í þakklætisskyni fyrir þátttökuna og frammistöðuna en það var Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri sem splæsti.  
Ice Lagoon gaf bátsferð á Jökulsárlón í keppnina, en Ice Lagoon er í eigu Ingvars Geirsson frá Sunnuhlíð í Suðursveit, einnig gaf Skóagasafnið aðgöngumiða að safninu og kyningarrit.
Fimmtán lið hófu þátttöku, þau voru: Arnfirðingafélagið, Árnesingafélagið, Átthagafélag Héraðsmanna, Átthagafélag Strandamanna, Barðstrendingafélagið, Dýrfirðingafélagið, Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra, Félag Djúpmanna, Húnvetningafélagið, Norðfirðingafélagið, Siglfirðingafélagið, Súgfirðingafélagið, Skaftfellingafélagið, Vestfirðingafélagið og Vopnfirðingafélagið.
Sá sem ber hitann og þungann af keppnunum því hann er spurningahöfundur, stjórnandi og dómari er Barðstrendingurinn Gauti Eiríksson kennari sem er frá Stað í Reykhólahreppi. 
sigurlidid_i_spurn_2014.jpg
 

Skaftfellingamessa og spurningakeppni

Sunnudaginn 23. mars kl. 14, verður árviss Skaftfellingamessa haldin í Breiðholtskirkju. Prestar Breiðholtskirkju, þau sr. Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla Elídóttir þjóna fyrir altari, en auk þess eru  prestarnir sr. Ingólfur Hartvigsson og sr. Haraldur M. Kristjánsson og kirkjukórar úr Vestur-Skaftafellssýslu boðaðir til messunnar. Kórarnir leiða saman messusöng undir stjórn organistanna og kórstjóranna Friðriks Vignis Stefánssonar, Kára Gestssonar í Vík og Brians Rogers Haroldssonar á Kirkjubæjarklaustri. Söngfélag Skaftfellinga selur kaffi að messu lokinni í safnaðarheimili kirkjunnar.
 
Spurningakeppni átthagafélaganna 
Átta liða úrslit fara fram þann 27. mars og verður þar um útsláttarkeppni að ræða þar sem þau fjögur lið sem sigra sínar keppnir komast áfram í undandúrslit. Dregið var í átta liða úrslit og verða viðureignirnar eftirfarandi:

Félag Djúpmanna - Siglfirðingafélagið
Átthagafélag Strandamanna - Húnvetningafélagið
Skaftfellingafélagið - Norðfirðingafélagið
Breiðfirðingafélagið - Átthagafélag Héraðsmanna

Spurningakeppni - Árangur Skaftfellinga

Lið Skaftfellingafélagsins var stigahæst í spurningakeppni kvöldsins og komst áfram í 8 liða úrslit, eftir æsispennandi keppni við Barðstrendinga og þó einkum Húnvetninga.
Okkar fólk fór á kostum sér í lagi í látbragðsspurningum sem þau fundu svör við í nánast öllum tilvikum.
Góð skemmtun sem óhætt er að mæla með.
Skaftfellingafélagið óskar keppendum sínum innilega til hamingju, þeim Jónu Benný Kristjánsdóttur úr Suðursveit og Nesjum, Salómoni Jónssyni frá Ketilsstöðum í Mýrdal og Þórhalli Axelssyni frá Höfn.