Þorri
- Nánari upplýsingar
Ákveðið hefur verið að ekki verði þorrablót á vegnum félagsins í þetta skipti.
Þorrablót 21. janúar
- Nánari upplýsingar
Laugadaginn 21. janúar verður haldið sameiginlegt þorrablót Skaft fellinga og Rangæinga.
Auglýst nánar síðar.
Bókakynning
- Nánari upplýsingar
Aðventustund - 4. des
- Nánari upplýsingar
Að venju var fjölmennt á aðventustund Skaftfellingafélagsins í Reykjavík, en talið er að hátt í 200 manns hafi heimsótt okkur að meðtöldum jólasveinunum síkátu og skemmtilegu.
Skúli formaður setti samkomuna og að því búnu söng Söngfélag Skaftfellinga nokkur jólalög undir stjórn Violetu Smid fyrrverandi stjórnanda til margra ára í fjarveru Friðriks Vignis Stefánssonar kórstjóra.
Bornar voru fram stórglæsilegar kaffiveitingar sem söngfélagar sáu að mestu leyti um að reiða fram.
Helena Marta Stefánsdóttir stjórnaði söng og dansi kringum jólatréð og faðir hennar Stefán Bjarnason sá að venju um undirleik á harmonikku auk sr. Einars Jónssonar sem lék á pínanóið.
Varð þetta hin besta skemmtun og undir lok stundarinnar drógu sveinarnir mandarínur upp úr pokum sínum.
Þökkum öllum innilega fyrir komuna.
Stjórn Skaftfellingafélagsins í Reykjavík.
TÖÐUGJÖLD í Kaffi Laugalæk 30. nóvember klukkan 21
- Nánari upplýsingar
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir lesa úr bókinni Heiða-fjalldalabóndinn og Hermann Stefánsson kveður rímur Látra- Bjargar úr bók sinni Bjargræði.
Bjarni Harðarson segir frá bókinni Forystufé.
Lambið verður hátt á strái, tvítreykt í piparsósu.
Plús harmóníkuspil.
Kaffi Laugalæk, Laugalæk 2, Reykjavík. 30. nóvember, klukkan 21:00
Skaftfellingafélagið- Sumarfrí
- Nánari upplýsingar
Núna er Skaftfellingafélagið farið í sumarfrí en við hittumst hress í haust.
- Vortónleikar og vorkaffi - 1. maí
- Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju
- Íslandsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna
- Gleðileg jól og farsælt nýtt ár
- Bókakynning í Skaftfellingabúð miðvikudagskvöldið 16.desember
- Aðventustund sunnudaginn 6. desember 2015, kl. 15 í Skaftfellingabúð
- Öræfaball ~ 21. nóvember
- Spilakvöld 12. nóv
- Myndakvöld ~ 5. nóvember
- Spilakvöld