Söngfélag Skaftfellinga óskar eftir söngvurum í allar raddir
Fyrsta haustæfing Söngfélagsins verður þriðjudagskvöldið 9. september í Skaftfellingabúð og hefst kl. 20 og verður æft öll þriðjudagskvöld.
Söngglaðir Skaftfellingar eru eindregið hvattir til að koma í kórinn og taka vini og vandamenn með sér. Eins og áður hefur komið fram er Söngfélagið opið öllum og best að vera með frá byrjun vetrar.
Söngfélag Skaftfellinga
- Nánari upplýsingar