Skip to main content

Spurningakeppni átthagafélaganna

sigurlidid i spurn 2014Þann 26. febrúar er seinna kvöldið í 19 liða spurningarkeppni Átthagafélagana.   Keppnin er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 og hefst kl. 20:00
 
Þeir sem keppa það kvöldið eru:
Siglfirðingafélagið - Átthagafélag Héraðsmanna
Skaftfellingafélagið - Breiðfirðingafélagið - Barðstrendingafélagið
Ísfirðingafélagið - Vopnfirðingafélagið - Félag Djúpmanna
Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra - Bolvíkingafélagið - Átthagafélag Vestmannaeyinga í Reykjavík.
 
Lið Skaftfellinga verður áfram skipað þeim sem unnu í fyrra 
Liðið skipa þau Jóna Benný Kristjánsdóttir, ættuð úr Nesjum og Suðursveit, Salómon Jónsson frá Vík sem var um tíma búsettur á Höfn og Hornfirðingurinn Þórhallur Axelsson.