Skip to main content

Skaftfellingamessa

Messa 2012Sunnudaginn 15. mars 2015 kl. 14, verður árviss Skaftfellingamessa haldin í Breiðholtskirkju. Prestar Breiðholtskirkju, þau sr. Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla Elídóttir, þjóna fyrir altari en auk þess er nú prestum og kórfólki úr Austur-Skaftafellssýslu boðið til messunnar. Kórarnir leiða saman messusöng undir stjórn organista og kórstjóra.
Söngfélag Skaftfellinga selur kaffi að messu lokinni í safnaðarheimili kirkjunnar.