Skip to main content

Skaftfellingar sigruðu átthagafélagskeppnina

Lið Skaftfelllingafélagsins fór með sigur af hólmi í Spurningakeppni átthagafélaganna sem efnt var til í Breiðfirðingabúð í vetur, annað árið í röð.  Liðið skipuðu þau Jóna Benný Kristjánsdóttir, ættuð úr Nesjum og Suðursveit, Salómon Jónsson frá Vík sem var um tíma búsettur á Höfn og Hornfirðingurinn Þórhallur Axelsson.   Í úrslitum kepptu þau við lið Húnvetningafélagsins sem var skipað Jóhanni Almari Einarssyni frá Tannstaðabakka, Hugrúnu R. Hólmgeirsdóttur ættaðri frá Bjarghúsum og Þorgrímsstöðum og Einari Loga Vignissyni frá Blönduósi. 
 Liðin voru jöfn 19 -19 eftir hina hefðbundnu keppni svo skellt var á bráðabana sem Skaftfellingar unnu. Þeir hömpuðu veglegum bikar og fengu auk þess hver og einn gistingu fyrir tvo með morgunmat á Hótel KEA, bækurnar Gröfin á fjallinu og Hljóðin í nóttinni frá Bókaútgáfunni Bjartur/Veröld og ostakörfur frá Osta-og smjörsölunni.  
Einnig hlutu þeir gistingu fyrir tvo með morgunmat í Hótel Skaftafelli frá Skaftfellingafélaginu í þakklætisskyni fyrir þátttökuna og frammistöðuna en það var Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri sem splæsti.  
Ice Lagoon gaf bátsferð á Jökulsárlón í keppnina, en Ice Lagoon er í eigu Ingvars Geirsson frá Sunnuhlíð í Suðursveit, einnig gaf Skóagasafnið aðgöngumiða að safninu og kyningarrit.
Fimmtán lið hófu þátttöku, þau voru: Arnfirðingafélagið, Árnesingafélagið, Átthagafélag Héraðsmanna, Átthagafélag Strandamanna, Barðstrendingafélagið, Dýrfirðingafélagið, Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra, Félag Djúpmanna, Húnvetningafélagið, Norðfirðingafélagið, Siglfirðingafélagið, Súgfirðingafélagið, Skaftfellingafélagið, Vestfirðingafélagið og Vopnfirðingafélagið.
Sá sem ber hitann og þungann af keppnunum því hann er spurningahöfundur, stjórnandi og dómari er Barðstrendingurinn Gauti Eiríksson kennari sem er frá Stað í Reykhólahreppi. 
sigurlidid_i_spurn_2014.jpg