Skip to main content

Spurningakeppni - Árangur Skaftfellinga

Lið Skaftfellingafélagsins var stigahæst í spurningakeppni kvöldsins og komst áfram í 8 liða úrslit, eftir æsispennandi keppni við Barðstrendinga og þó einkum Húnvetninga.
Okkar fólk fór á kostum sér í lagi í látbragðsspurningum sem þau fundu svör við í nánast öllum tilvikum.
Góð skemmtun sem óhætt er að mæla með.
Skaftfellingafélagið óskar keppendum sínum innilega til hamingju, þeim Jónu Benný Kristjánsdóttur úr Suðursveit og Nesjum, Salómoni Jónssyni frá Ketilsstöðum í Mýrdal og Þórhalli Axelssyni frá Höfn.