Skip to main content

Nýtt fréttabréf

Nýtt fréttabréf, smella hér.

Fýlav

Hin árlega og ómissandi fýlaveisla verður 
í Skaftfellingabúð fyrsta vetrardag,
laugardaginn 25. október 2014 
og hefst með borðhaldi kl. 20. 
Húsið verður opnað upp úr kl. 19.

Að venju verður borinn fram saltaður fýll úr Mýrdalnum, veiddur af Tryggva Ástþórssyni og verkaður undir vökulum augum Málfríðar Eggertsdóttur.
Auk þess verður boðið upp á hangikjöt og meðlæti.
Inga Jóna Sigfúsdóttir matreiðir herlegheitin
sem fyrr með aðstoð Rósu frá Eyjarhólum.
Sögumaður Baldur Óskarsson frá Vík.
Hilmar Sverrisson leikur fyrir dansi.


Miðapantanir til og með 22. október 
Hákon (821 2115) og Helgi (899 4818)
Aðgangur kr. 6.500
 Tongue out
fyll-05.jpg

Söngfélag Skaftfellinga - Æfingar

Söngfélag Skaftfellinga mun hefja söngstarfið þriðjudagskvöldið 16. september kl. 20:00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, 4. hæð.   
Æfingar verða á þriðjudagskvöldum í vetur. Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson.
Nýir félagar eru velkomnir í allar raddir. Opið hús er á þriðjudagskvöldum og er söngfólk hvatt til að koma í heimsókn, fá sér kaffisopa og kynna sér starfsemi Söngfélagsins. 
Nýir félagar greiða ekki félagsgjald fyrsta misserið. 
Söngfélag Skaftfellinga er blandaður fjórradda kór og eru söngfélagar ættaðir víðsvegar að af landinu, þótt flestir eigi ættir að rekja í Skaftafellssýslur.
Fjöldi söngfélaga er u.þ.b. 40. Áhugasamir eru eindregið hvattir til þátttöku.
Upplýsingar gefur Stjórn Söngfélags Skaftfellinga:

Sveinn Hjörtur Hjartarson s: 554 6177 & 824 2309
Kristjana Rósmundsdóttir s: 553 9807 & 864 0684
Sigurlaug Jóna Sigurðardóttir s: 588 7273 & 891 7354
Helga Lilja Pálsdóttir s: 478 1706 & 618 5706
Guðmundur Bertelsson s: 551 8204 & 865 9185
skaft_kor_2013.jpg
 

Gönguferð um Brunasand

Skaftáreldar breyttu Brunasandi úr eyðisandi í gróna sveit. Helgina 21-22.júni verður gönguferð um Brunasand og tengist hún útgáfu Dynskóga á næsta ári, sem mun fjalla um þessar breytingar og náttúrufar og mannlíf á Brunasandi. Fararstjórar og leiðsögumenn verða: Jón Hjartarson sagnfræðingur, Bergrún Óladóttir jarðfræðingur, Edda Sigurdís Oddsdóttir líffræðingur, Helgi Björnsson jöklafræðingur, Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur, Júlíana Magnúsdóttir þjóðfræðingur, Margrét Ólafsdóttir landfræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur. Þátttakendur nota eigin bíl og  útvega sér sjálfir gistingu í og við Kirkjubæjarklaustur. Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Ferðafélags Íslands.

Skaftfellingafélagið & Ferðafélag Íslands

Hreinsunardagur í Heiðmörk

Allir sem þrá að láta gott af sér leiða og taka til hendinni í fögru umhverfi mæta í lund félagsins í Heiðmörk laugardaginn 24. maí, kl. 10, með nesti, sagir, klippur og annað er að gagni kemur við fegrun lundarins.
tre1.gif
 

Fundargerð aðalfundar 2013

Samþykkt hefur verið að setja fundargerð aðalfundar á vefinn, hér er skýrlsan frá aðalfundi 2013 og á næstu dögum kemur skýrslan frá fundinum 2014.

Fundargerð 2013