Mánudagskvöldið 24. júní býður Skaftfellingafélagið áhugasömum að ganga um reit félagsins, Skaftafell, í Heiðmörk. Miðað verður við að hittast eftir kvöldmat c.a. 19:30. Beygt er austan við Rauðavatn þar sem merktur er afleggjari 408 Heiðmörk og keyrður sá vegur fram hjá afleggjara að Elliðavatnsbænum og austur að skilti sem stendur á Hraunslóð og þaðan er 1,6 km að reitnum.
Written on .
Aðalfundur - 14. maí
Aðalfundur Skaftfellingafélagsins verður haldinn þriðjudagskvöldið 14. maí 2019, kl. 20:00, í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá (áætluð) 1) Fundur settur 2) Kosning starfsmanna fundarins 3) Skýrsla stjórnar 4) Reikningar félagsins 5) Skýrsla og reikningar Kvikmyndasjóðs 6) Skýrsla Söngfélags Skaftfellinga 7) Skýrsla gönguhópsins Skálmar 8) Lagabreytingar 9) Húsnæðismál og framtíð félagsins 10) Stjórnarkjör 11) Önnur mál
Written on .
Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2019. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.
Umsóknum skal fylgja: Greinargóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess. Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins. Upplýsingar um helstu samstarfsaðila. Fjárhagsáætlun verkefnisins þar sem fram kemur framlag samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til ritara sjóðsstjórnar. Nánari upplýsingar: Kvískerjasjóður
Written on .
Myndakvöld - 28 mars
Myndakvöld á vegum Skaftfellingafélagsins er áformað 28. mars kl. 20:00 í Breiðfirðingabúð í Faxafeni 14, efri hæð. Þar munu Kári Kristjánsson, starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs, og Páll Imsland jarðfræðingur sýna myndir og miðla fróðleik.
Kári sér um fyrri hálfleik og leiðir fólk úr Vonarskarði um svæðið austan Tungnaár suður í Laka, með viðkomu við Langasjó og í Eldgjá, svo þekkt kennileiti séu nefnd.
Eftir kaffihlé verður Páll Imsland með myndskreyttan fyrirlestur um þróun og aldur strandlónanna á Suðausturlandi, meðal annars Hornafjarðar. Annar kafli dagskrár hans nefnist Land og lýður og byggist á myndasýningu af landslagi og uppákomum á Suðausturlandi. Þriðja og síðasta atriði hans nefnist: Sauðfé ferjað úr Breiðamerkurfjalli. Það er um fimm mínútna kvikmyndabrot frá haustinu 2016.
Written on .
Íslandsmeistaramót í Hornafjarðarmanna
Íslandsmeistaramót í Hornafjarðarmanna gekk vel, spilað var á 8 borðum og að lokum stóð Stefán upp sem sigurvegari og fékk fyrir það mat og menningarupplifun á Þórbergssetri, Helga vann önnur verðlaun og fékk fyrir það siglingu á Fjallsárlón og síðan tók Nökkvi þriðja sætið og með því ferð í Ingólfshöfða.